Sl. föstudag fékk útgerðin Vébjarnarnúpur bátinn Einar Hálfdáns afhentan aftur frá Trefjum ehf. eftir niðursetningu á nýrri FPT C13 vél frá Ásafli. Hún tók við af Yanmar sem var þar fyrir.
Ásafl óskar Vébjarnarnúpi til hamingju með nýju vélina.
Vélin sem um ræðir er:
Fpt C13 650 hestafla aðalvél, sem var tengd við ZF 325 gír sem var um borð.
Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu bátsins.