Vinnuvélar og Landbúnaður hefur keypt Ásafl og flutt starfsemina að Völuteig 4 Mosfellsbæ

Markmiðið með kaupunum er að leggja grunn að öflugu alhliða sölu og þjónustufyrirtæki við verktaka, sjávarútveg, landbúnað, sveitarfélög og græn svæði með öflugum hópi starfsmanna með mikla sérþekkingu.

Grunn Vinnuvéla og Landbúnaðar má rekja til stofnunar fyrirtækisins Vinnuvélar Tækjamiðlun árið 2014 en áherslan þar var á þjónustu við jarðvinnuverktaka, golfvelli og sveitarfélög með innflutning nýrra og notaðra tækja.

Ásafl var stofnað haustið 2007 og sérhæfði sig til að byrja með í sölu og þjónustu á vélum og búnaði fyrir minni báta og skip en síðar þróaðist reksturinn út í innflutning bryggju og bátakrana, sérhæfðra vinnuvéla, kerra ofl.